Endurgreiðslustefna
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Við í Möst. C vonum að þú sért ánægð/ur með vörurnar frá okkur.
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Varðandi fatnað þá skal varan vera ónotuð, óþvegin og í upprunalegu ástandi. Einnig ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ekki er hægt að skila nærbuxum, samfellum og öllu því sem stingst inn í líkamann af hreinlætis- ástæðum.
Kvittun fyrir kaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin.
Ef vöru er skipt í gegnum póstsendingu ber kaupandi allan kostnað af flutningsgjöldum.
Þegar vöru er skilað eða skipt þá þarf kvittun að fylgja og einnig þarf varan að uppfylla ofangreind skilyrði.
Ef vara er keypt í netverslun er hægt að velja hvort vara er sótt í verslun, þarf þá að sækja í verslunina innan þriggja virkra daga eða fá sent og fer vara þá úr verslun samdægurs. Ef vara er ekki sótt í verslun innan tímaramma verður hún send til kaupanda á hans kostnað.
Ekki er hægt að skila eða skipta vörum sem keyptar eru á útsölu/afslætti/outlet nema að galli sé á vöru.