Skilmálar
Almennt
Möst.C áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar vörur frá Möst.C eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sendingar kostnaður er greiddur af viðskiptavinum samkvæmt verðskrá íslandpósts. Nema, ef verslað er fyrir 10.000 kr þá er sendingarkostnaður greiddur af Möst.c
Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Það má lesa um þá hér: https://www.posturinn.is/
Möst.C ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni eftir að hún hefur verið póstlögð. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Möst.C til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Við geymum ógreiddar pantanir í 2 virkadaga ef ekki er búið að klára pöntun innan þess tíma þá verður hún aftur sett í sölu.
Einnig er hægt að sækja pöntunina hjá okkur á Suðurlandsbraut 50, Mán-Föst frá kl 11-18 eða laugardaga frá kl 11-16.
Verð
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Mostc.is sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru gefin upp með VSK og eru allir reikningar gefnir út í samræmi við það.
Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með debetkorti, kreditkorti eða með Netgíró í netversluninni.
Möst.C notar greiðslugátt frá korta á Íslandi.
Þegar greitt er með Netgíró þarf að skrá sig inn á heimasíðu Netgíró með kennitölu og lykilorði. Þegar gengið hefur verið frá kaupum, mun reikningur frá Netgíró birtast í netbanka með allt að 14 daga vaxtarlausum greiðslufresti.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Við í Möst. C vonum að þú sért ánægð/ur með vörurnar frá okkur.
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Varðandi fatnað þá skal varan vera ónotuð, óþvegin og í upprunalegu ástandi. Einnig ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.
Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin.
Þegar vöru er skilað eða skipt þá þarf kvittun að fylgja og einnig þarf varan að uppfylla ofangreind skilyrði.
Útsöluvöru er ekki hægt að skila né skipta
Ekki er hægt að nota inneigarnótu á útsölu
Ef varan uppfyllir ofangreind skilyrði og varan mótekinn þá er endurgreiðsla farmkvæmd.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Skipti fara fram í verslun okkar á Suðurlandsbraut 50, bláu húsin við Faxafen, 108 Reykjavík. Ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt þá er hægt að velja um að fá inneignarnótu, nýja vöru, fá aðra stærð í staðinn, eða þú sendir vöruna til okkar í pósti og við sendum þér nýja vöru í staðinn.
Ef upp kemur að þú færð gallaða vöru eða ranga pöntun, vinsamlegast hafðu samband við okkur í síma 588-4499. Vörunni skal skila innan 3 sólahringa frá móttöku eða vera póstlögð innan þess tímaramma.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
UPPLÝSINGAR UM SELJANDA
Möst.C
Suðurlandsbraut 50
108 Reykjavík
Ísland
S: 5884499
[email protected]
VSK – númer: 106011